Tölulegar upplýsingar frá Sjúkrahúsinu Vogi og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinganna sem eru að leita sér meðferðar á þessu ári 2010 sýna svo ekki verður um villst að ávísun lækna á lyfið methylfenydat eða ritalín verður að endurskoða.Sölutölur um lyfið þarf að skoða yfir langan tíma og bera saman við tölulegar upplýsingar frá Sjúkrahúsinu Vogi og könnun á hinum ólöglega vímuefnamarkaði til að sjá málið í réttu ljósi.
Faraldur ólöglegrar amfetamínneyslu að sænskri fyrirmynd hófst á Íslandi árið 1983. Faraldurinn einkennist af því að neytendurnir notuðu stóra skammtar af efninu og voru þekktir kannabisneytendur fyrir. Gamlir fíklar með nýtt efni. Þeir sugu efnið í nef og um 60% þeirra sprautuðu efninu í æð. Neytendurnir voru ungir og leiddust margir þeirra fljótt út í afbrot. Eitt hvað dró úr faraldrinum frá 1987 til 1992. Á árunum 1995 til 2000 vex faraldurinn gríðarlega og nýju neytendurnir eru mjög ungir og eru að leita sér meðferðar í fyrsta sinn. Nýir fíklar með nýtt efni. Inn í amfetamínfaraldurinn komu kókaín og E- Pillur og æ algengara var að sjúklingarnir sem komu til meðferðar voru að fara úr einu örvandi efninu í annað eftir efnum og aðstæðum.

Einmitt á þessum árum 1995 til 2000 er létt hömlun á ávísun lækna á amfetamín og skyldra efni. Sölutölur rjúka þá upp og við setjum enn eitt heimsmetið. Um og eftir 2000 verður það æ algengara að sjúklingar leita á Vog sem fyrst og fremst eru háðir ritalíni og sprauta því í æð. Sjúklingarnir sögðu fíkn sína í þetta efni jafnvel sterkar en í flest önnur vímuefni. Þetta var auðvita óásættanlegt en ástand hélst nokkuð óbreytt næstu árin hvað ritalínið varðaði meðan kókaínneysla sótti í sig veðrið.
Þegar hrunið varð og kreppan kom minnkaði framboð á ólöglegu amfetamíni, kókaíni og E-pillum og sést það greinilega á tölunum frá Vogi 2009. Það sem stingur þó í augun er að ritalínneyslan vex hratt og vinnur upp þá minnkun sem varð á ólöglega amfetamíninu svo að amfetamínfíklum fjölgar hlutfallslega meðan kókaínfíklum og e-pillufíklum fækkar skart.
Til að skoða betur þessar breytingar var hrundið af stað viðamikilli upplýsingasöfnun um örvandi vímuefnaneyslu á Vogi. Nú liggja fyrir fyrstu upplýsingarnar um 600 einstaklinga sem komið hafa á Vog þetta árið. Í ljós kemur að 429 hafa notað örvandi vímuefni og 109 hafa sprautað efnunum í æð. Af þeim 109 sem sprautað hafa örvandi vímuefnum í æð segjast 64 eða um 60% að ritalín sé það efni sem þeir noti mest eða næstmest. Þeir segjast sprauta sig 10-20 sinnum á dag og nota tugi taflna daglega. 103 af 109 sprautufíklum eru að nota rítalín eitt og sér eða með örðum örvandi vímuefnum.Þessar upplýsingar ber að taka alvarlega og þær kalla á viðbrögð.









