NOTKUN GÆÐAVÍSA Á HJÚKRUNARHEIMILUM
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) og Embætti landlæknis boða til sameiginlegs fræðslu- og umræðufundar um notkun gæðavísa á hjúkrunarheimilum.
Fundurinn er hugsaður fyrir stjórnendur á hjúkrunarheimilum og eru allir sem tengjast notkun RAI-mats og gæðavísa, sérstaklega hvattir til að mæta.
Mánudagur 28. nóvember 2011
Kl. 13:00 – 16:00
Hátíðarsalur hjúkrunarheimilisins Grundar
DAGSKRÁ
13:00-13:10 Setning fundar
Gísli Páll Pálsson, formaður SFH
13:10-13:30 Gæðavísar – til hvers?
Sigríður Egilsdóttir og Laura Scheving Thorsteinsson verkefnisstjórar á sviði eftirlits og gæða hjá Embætti landlæknis
13:30-14:20 Viljum við vita hvaða hjúkrunarheimili standa sig best?
Kynning á aðferðum sem hægt er að nota til að bera saman gæði á hjúkrunarheimilum með RAI gæðavísum
Ingibjörg Hjaltadóttir, PhDc, hjúkrunarfræðingur á Lyflækningasviði Landspítala
14:20-14:40 Kaffihlé
14:40-15:10 Vinnuhópar um gæðavísa
Þátttakendum verður skipt í vinnuhópa. Hver hópur fær spurningu til að vinna með og skila af sér niðurstöðu í lok fundar. Spurningarnar sjálfar verða kynntar á fundinum en þær geta verið eins og „Er rétt að birta gæðavísa hjúkrunarheimila opinberlega?“
15:10-16:00 Stuttar kynningar á niðurstöðum vinnuhópa og samantekt
Fundarstjóri: Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri sviðs Eftirlits og gæða hjá Embætti landlæknis
Þátttaka á fundinum:
Mikilvægt er að allir þátttakendur skrái sig á fundinn fyrirfram. Þannig verður hægt að skipta þátttakendum í vinnuhópa fyrir fundinn og velja saman fólk í vinnuhópa með ólíkan bakgrunn til að tryggja fjölbreytta umræðu.
Skráning:
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku FYRIR FIMMTUDAGINN 24. NÓVEMBER
á netföngin Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.









