Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Lög Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu

Prentvæn útgáfa

1.gr. Nafn, heimili og varnarþing.
Nafn samtakanna er Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, skammstafað SFH.  Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík. 

2.gr. Tilgangur.

Tilgangur samtakanna er að:
a. Efla samstarf aðildarfélaga, standa vörð um hagsmuni þeirra og vinna að bættum starfsskilyrðum.
b. Stuðla að árangursríku samstarfi við heilbrigðisyfirvöld, sveitarfélög,  félagasamtök og aðra þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta.
c. Að koma á framfæri við stjórnvöld og almenning afstöðu samtakanna til mála er varða hagsmuni aðildarfélaga og fylgja þeim fram.
d. Að gangast fyrir upplýsinga- og fræðslustarfsemi m.a. í því skyni að stuðla að framförum og hagræðingu í starfsemi og rekstri aðildarfélaga.

3.gr. Aðild.
Aðild að samtökunum geta átt þau fyrirtæki sem fullnægja ákvæðum IV. kafla laga um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 og eru sjálfseignarstofnanir, í eigu félagasamtaka, einkaaðila eða sveitarfélaga.
Umsókn um aðild að SFH skal senda skriflega til stjórnar samtakanna.  Inntökubeiðni telst samþykkt ef meirihluti stjórnar samþykkir hana.  Skjóta má synjun á inntökubeiðni til aðalfundar eða félagsfundar. 
Hver stofnun fer með atkvæðismagn á fundum í samræmi við fjölda rýma á stofnun.  0 – 99 rými gefa 1 atkvæði, 100 – 199 rými gefa 1,5 atkvæði og 200 rými eða fleiri gefa 2 atkvæði.

4. gr. Árgjöld.
Aðalfundur ákveður árgjald til samtakanna.  Árgjöld skulu miðast við stærð og rekstrarumfang stofnana.

5.gr. Stjórn.
Stjórn samtakanna skal skipuð 5 mönnum og 2 til vara.  Formaður skal kosinn sérstaklega.  Kjörtímabil stjórnar er eitt ár eða á milli aðalfunda.  Kosning stjórnar skal vera skrifleg, sé þess óskað.  Hlutkesti ræður kjöri, þegar atkvæði falla jafnt.  Varamenn taka sæti í aðalstjórn eftir þeirri röð, sem atkvæði falla á þá.

6.gr.  Stjórnarfundir.
Á fyrsta fundi eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér verkum og kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera.
Formaður ákveður fundi stjórnar.  Þó er skylt að halda stjórnarfund ef 2 eða fleiri stjórnarmenn óska eftir því.

7. gr. Starfsmaður
Stjórn er heimilt að ráða starfsmann og/eða kaupa sérfræðiþjónustu, til sértækra tímabundinna verkefna, enda séu þau unnin í þágu meirihluta stofnana.

8.gr. Reikningar.
Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
Frumeintak ársreiknings, undirritað af gjaldkera og skoðunarmönnum skal lagt fyrir stjórn og síðan aðalfund til samþykktar.

9.gr. Aðalfundur.
Aðalfundur samtakanna skal haldinn árlega, fyrir lok aprílmánaðar.
Rétt til setu á aðalfundi eiga formaður stjórnar og forstjóri/framkvæmdastjóri aðildarfélaga, eða fulltrúar þeirra.
Aðalfundarboð skal sent félögum með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Á dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla formanns og stjórnar.
3. Reikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar.
4. Kosning formanns.
5. Kosning annarra stjórnarmanna og varamanna.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna.
7. Ákvörðun árgjalda.
8. Önnur mál.

Á dagskrá aðalfundar má taka, sem sérstök atriði, tillögur og mál, sem berast í hendur stjórnarmanna minnst einni viku fyrir aðalfund. 
Meirihluti atkvæða fundarmanna ræður úrslitum mála.

11. gr. Fundir.
Stjórnin skal boða til a.m.k. tveggja almennra félagsfunda á milli aðalfunda.  Almennir félagsfundir eru að jafnaði opnir stjórnum aðildarfélaga og starfsfólki þeirra.  

12. gr. Lagabreytingar.
Lögum þessum má breyta á aðalfundi, en tillögur um lagabreytingar skulu fylgja aðalfundarboði.

Lög samþykkt á stofnfundi SFH 24. apríl 2002.

 

 

Um samtökin

Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) voru stofnuð þann 24. apríl 2002 á Hrafnistu í Reykjavík. Innan samtakanna eru fyrirtæki sem eru ekki ríkisfyrirtæki og starfa á heilbrigðissviði samkvæmt þjónustusamningi eða öðrum tengdum greiðslum frá ríkinu, t.d. daggjöldum.

Nýlegt efni

Ráðstefna 12.10 2011

kynning10122011

Ráðstefna 11.11.2010

261010

Ráðstefna 16.3.2010